Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026
Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 16. maí 2026
16. apríl 2026
Frá og með föstudeginum 17. apríl verður unnt að greiða atkvæði utan kjörfundar í Ráðhúsi Suðurnesjabæjar, Sunnubraut 4 í Garði á eftirfarandi tímum:
- mánudaga til fimmtudaga frá kl. 09:30 til 15:00.
- föstudaga frá kl. 09:30 til 12:30.
Kjósendur skulu hafa meðferðis og framvísa gildum persónuskilríkjum (ökuskírteini eða vegabréfi).